Skoli Skoli Skoli

Frekar langt síðan ég nennti að blogga seinast sökum anna;) En það er mikið búið að gerast! Ég og Heimir fórum til Berlínar. Við vorum í geðveikri íbúð með svölum þar sem við slökuðum á og hlustuðum á tónlist. Á daginn var svo verslað verslað verslað. Fötin voru efst á list hjá mér og var H&M algjörlega í uppáhaldi Heimi til mikillar mæðu en ég hékk heilu dagana með honum í plötubúðum svo hann getur ekki sagt mikið;) Um helgina var svo farið á Dj sett með Shit Robot sem var geðveikt svo sýndi Teddi okku næturlífið og við fórum á nokkra skemmtilega staði með honum. þessi ferð var hreint út sagt geðveik og ég er nú bara frekar pirruð að hún sé búin:(
Þegar við komum heim tók bara vinnan við. Fyrir tveimur vikum fórum við hópurinn í sumarbústaðaferð til að viðhalda hefðinni en við Kvennóliðið erum búnin að að ákveða að reyna að fara hvert sumar.
Seinustu helgi yfirgáfu Björg og Helga okkur og fluttu langt í burtu:) Björg fór að læra Markaðshönnun í Danmörku. Það er hundleiðinlegt þegar hún er ekki uuwwwwah :( Helga fór alla leið til Ungverjalands í læknisfræði og kemur ekki til okkar aftur fyrr en eftir heilt ár!:( En ég er nú strax farin að plana ferð til Danmerkur í heimsókn til Bjargar og er strax farin að hlakka til:)
Skólinn byrjaði svo í vikunni og hann byrjar bara vel! Mér líst bara vel á fögin og vildi svo skemmtilega til að eg er með Kristjönu í efnafræði og Birgittu í efnafræði og stærðfræðigreiningu.
Þetta er allt og sumt í bili... bæ:)

